Tuesday, April 17, 2007

Fyrsta Flokks.


Auðvitað, einhvernveginn held jeg að þið öll séuð svoldið þreitt á að lesa þessi fyrsta flokks ferðalög en jeg meina það er það eina sem jeg geri hér, að fara í fyrsta flokks ferðalög ;) eins gott að monta sig bara af þessu meðan jeg hef þetta því þráðurinn er að styttast og heimkoma mín á næsta leiti sem verður eflaust einhverskonar skrúðganga til heiðurs heimkomu minni... okey já jeg fór til New York í fimm daga og gistum við á Westin hóteli í miðju Time Square voru öll elstu Brodway sýningarnar í kringum hótelið okkar sem var glæsilegt í alla staði jeg var á 30 hæð í mínu eigin stóra herbergi með þvílíku útsíni, gat ég sé Empire state bigginguna, Sentral Park þetta var dvöl sem jeg á seint eftir að gleyma, það að ganga upp og niður Time Square, ganga um í Sentral Park og sjá öll þessi stórhýsi út um allt síðan tókum við neðanjarðarlestina til China town og gerðum nokkur kosta kaup. Síningarnar sem jeg fór á voru Beauty and the Beast og Marry Popins síðan fékk jeg að gera svoldið sem ekki margir fá að gera og það er að syngja í The Apalo Theater sem er heimsfrægt skemmtana leikhús, tillgangur New York ferðarinnar var að að skólinn í Vegas tók þátt í leiklistar keppni og getið þið hver vann fyrir besta sönginn ;) ó jee jeg vann medalíu. Og vá jeg hef aldrei fengið betri Pizzu sneið heldur en í New York þetta var allgjör veisla fyrir bragðlaukanna. Nú seinasta daginn þurfti jeg síðan að taka lestina frá Pen Station til Whasington DC þar sem jeg myndi síðan hitta fjölskilduna og myndum við eiða páskunum þar, Westin hótelið skaffaði svona lítinn limmóbíl fyrir mig til að skutla mér á lestarstöðina það ótrúlega kúl við þetta allt saman er að jeg var klæddur í frakka og trevil og með tvær Loui vuitton töskur hlaupandi frá bílnum að lestarstöðinni því jeg var að verða of seinn, jeg meina sjáið þið þetta ekki fyrir ykkur ;) hahaha já. Þetta var 3 tíma lestarferð á Buissnes Class sem var auðvitað svakalegt en auðvitað þíðir ekkert annað en það besta þegar jeg á í hlut. Í DC var síðan skoðað öll þessi marmarahvítu hús við fórum í The National Museum og önnur listasöfn. Maður sistur Sue er hátt settur maður í Pentagon og fórum við heim til þeirra í nokkur skipti, honum fannst ekki fyndið þegar jeg var að djóka með það að jeg væri að afrita leinikóða og reyna að hakka mig inní Pentagon í gegnum tölvuna hans, neibb ekki fyndið Sveinn hahaha... eftir 6 daga í DC var loksins farið heim, þið kannski trúið því ekki en öll þessi ferðalög verða svoldið þreitandi. Þessa síðustu helgi fórum við strákarnir til L.A þar sem fjölskilduvinur okkar á svaka flott 60 feta skútu (sem er huge, þrjú svefnherbergi öll með salerni) þar silgdum við til lítillar eygju rétt fyrir utan L.A og síðan á sunnudaginn komum við heim og núna er jeg í tölvutíma að reyna að láta daginn líða.... svona er þetta búið að vera síðastliðin mánuðinn, nýjar myndir fara rétt bráðum að koma.


Ps: Mama Sue gaf mér Rolex úr, ó já jeg kem heim allur út í skartgripum ;) hahaha

11 Comments:

At 9:27 AM, Anonymous Anonymous said...

HELLÓHA...þú ert nú meiri dekurróan...þad verður sko ekkert að þessu gert fyrir þig þegar þú kemur heim...þú mund bara þurfa að halda á skólatöskunni þinni sjálfur:s:s...... og þú getur gleymt því að fá limmu uppá völl..Vond tilhugsun en svoleiðis verður það....hehe;)...voða spennt að sjá þig samt..hehe ekki langt í það!!!

mbk.
bynda :)

 
At 10:33 AM, Anonymous Anonymous said...

Æi þú ert ágætur, ég nenni ekki að kommenta um hvað lífið þitt er frábært því þú veist það alveg elskan! Farðu bara að drífa þig heim!

 
At 1:55 PM, Anonymous Anonymous said...

God Sveinn! Alltaf þegar ég kommenta hjá þér þá segi ég alltaf hvað ég er jealous.

Ég verð að viðurkenna að ég er það soldið ennþá.

En þetta er samt svo gaman fyrir þig.
Og vá ég trúi ekki að þú hafir unnið fyrir besta sönginn.. Hve geggjað er það :) til hamingju beibí ;)

 
At 3:57 PM, Anonymous Anonymous said...

ég skil nú ekki að þú hafir nokkurn áhuga á að koma heim. Lífið svo fullkomið hjá þér :)

 
At 12:56 AM, Blogger Elfar P said...

AHa!!!!! þetta er svakalegt hjá þér man, og til hamingju með sönginn, ég hef alltaf haft trú á þér eftir að ég heyrði einhverntíman í þér í Duus húsum singja, var í fyrsta skiptið sem ég heyrði þig singja í allvörunni, og já veistu þú komst mér vel á óvart. Njóttu þess sem eftir er, tíminn flígur og við eigum ógó stutt eftir.

 
At 4:34 AM, Anonymous Anonymous said...

Váá til hamingju með sönginn Sveinn.. en æðislegt hjá þér! Þú ert nottlega frábær söngvari og það heyrði maður í kirkjunni hjá Ömmu Birnu. Bara frábær.. en jiduddamía.. Ég myndi sko ekkert koma heim á þetta klakaland&rokrassgat :P haha.. Kv.

 
At 11:27 AM, Anonymous Anonymous said...

jamm það hefur bara allt verið sagt hérna fyrir ofan..
en hvenær kemuru svo heim?...
þér á efir að vera SVO KALT!! vonandi áttu einhver hlý föt eftir í pokahorninu.. eða Loui vuitton manbaginu þínu.. HHAHAHA!!

 
At 2:07 PM, Anonymous Anonymous said...

GAUR BLOGGAÐU...ÞAÐ ER KOMIN MAÍ...STITTIST Í JÚNI:D:D...JEYYYY!!!

 
At 1:23 AM, Blogger Elfar P said...

Jæja sveinn, núna þarftu að hringja í mig, ég hef margt sem ég þarf að ræða við þig um, mikilvægir hlutir, þannig að notaðu síman hjá ríku foreldrunum þínum og hringdu í mig, hvenær sem er, ég er aldrey sofandi

 
At 2:28 PM, Anonymous Anonymous said...

Hæ Sveinn, pakkinn er ekki enn komin :( Fékkstu e-h númer eða seðil þegar þú sendir pakkann?? Let me know
kv.Anika

 
At 8:28 AM, Anonymous Anonymous said...

jæja það er komin JÚNÍ!!

 

Post a Comment

<< Home